Almennir skilmálar
Skilmálar heilsuræktarsamninga hjá World Class/Laugar ehf. (hér eftir nefnt World Class).
Eftirfarandi samningur er á milli World Class og áskrifanda um almennar skyldur World Class og áskrifanda meðan á virkri aðild stendur.
Samningurinn tekur til allra aðildarsamninga sem áskrifandi gerir við World Class.
Skyldur World Class:
World Class skuldbindur sig til að hafa heilsuræktarstöðvarnar sem samningur veitir aðgang að opnar á auglýstum afgreiðslutíma.
World Class skuldbindur sig til að hafa í boði alla þá þjónustu sem auglýst er á hverjum tíma.
Samningur veitir áskrifanda aðgang að opnum kennslu/þjálfunartímum sem World Class býður upp á eftir því sem pláss leyfir. Samningurinn veitir hinsvegar ekki rétt til aðgangs að lokuðum tímum og námskeiðum sem kann að verða boðið upp á gegn gjaldi.
Skyldur áskrifanda:
Áskrifandi sækir heilsuræktarstöðvar World Class á eigin ábyrgð. Áskrifandi fullyrðir með samþykki á skilmálum þessum að honum sé óhætt að stunda líkamsrækt og að honum sé engin sérstök hætta búin af því heilsufarslega. Áskrifandi stundar æfingar á eigin ábyrgð og firrir World Class allri ábyrgð á hugsanlegum meiðslum eða slysum sem kunna að koma fyrir. World Class ber enga ábyrgð á líkamstjóni áskrifanda nema það verði sannanlega rakið til stórfellds gáleysis stöðvarinnar eða starfsmanna hennar.
Öll verðmæti eru á eigin ábyrgð inni í stöðvum World Class. Skápar eru til staðar og þarf að koma með eigin hengilás til þess að læsa þeim - engin ábyrgð er borin á verðmætum í læstum skápum. Ef áskrifandi skilur eftir lás á skáp eftir lokun verður klippt á hann og innihald skápsins gefið til hjálparsamtaka.
Áskrifandi samþykkir að nota aðgangsstýringarkerfi World Class eins og það er á hverjum tíma (nú augnskannar).
Áskrifandi skuldbindur sig til að að hlíta umgengisreglum World Class, að ganga vel um tæki og búnaði stöðvanna og að ganga frá tækjum, þ.m.t. lóðum eftir notkun. Stórfellt eða ítrekað brot gegn þessu ákvæði heimilar starfsmönnum World Class að vísa viðkomandi út úr heilsuræktarstöðvum World Class, auk þess sem World Class getur rift samningi við hann.
Áskrifanda er ekki heimilt að framselja rétt sinn til annars aðila. Þá getur áskrifandi ekki geymt rétt sinn til skemmri eða lengri tíma með því að leggja inn áskriftina.
Öll misnotkun áfengis, eitur- og ávanabindandi lyfja er með öllu óheimil á lóðum og innan veggja stöðva World Class - brot á því varðar brottvísun og mögulegu banni fra stöðvum World Class.
Aldurstakmark í World Class er 13 ára á árinu.
Skilmálar kvöld- og næturaðgangs:
World Class gefur viðskiptavinum sínum kost á að stunda líkamsrækt í starfsstöð félagsins í World Class Kringlunni 1 að kvöldi og nóttu. Líkamsræktarstöð þessi er ómönnuð að nóttu til.
Viðskiptavinum ómannaðra líkamsræktarstöðva er með öllu óheimilt að hleypa öðrum inn til æfinga og skulu gæta þess að loka vel á eftir sér. Ölvun er með öllu óheimil.
Viðskiptavinir ómannaðra líkamsræktarstöðva bera fulla ábyrgð á því að haga æfingum sínum með þeim hætti að hvorki þeir né aðrir hljóti skaða af.
Viðskiptavinir ómannaðra líkamsræktarstöðva verða sjálfir að ganga frá og koma öllu fyrir á sínum stað sérhverju því æfingartæki sem þeir nota, s.s. lóðum í rekka og lyftingastöngum án lóða í bekki. Einungis er aðgangur að tækjasal að nóttu til.
Viðskiptavinir ómannaðra líkamsræktarstöðva skulu ganga snyrtilega um stöðvarnar og gæta fyllsta hreinlætis, halda gólfum og æfingartækjum öllum þurum af svita, vökvum og öðrum vessum.
Viðskiptavinir ómannaðra líkamsræktarstöðva bera alla ábyrgð á sér og sínu.
Verði viðskiptavinir valdir af skemmdum á búnaði eða húsnæði félagsins skulu þeir bæta það að fullu.
World Class getur hvenær sem er breytt skilmálum þessum.