Karfan þín

Í Infrared Hot Core & Foam vinnum við í að styrkja miðjuna. Skemmtilegar core-, teygju- og pilates æfingar á foamrúllu og á gólfi. Við notum foamrúllu til þess að nudda líkamann og litla bolta. Vinnum á bandvef, hrygg, vöðvum og triggerpunktum. Nuddið flýtir fyrir bata í vöðvum og bætir líkamsástand. Við viljum verða sterkari og liðugri og endum tímann á góðri slökun á sama tíma og við losum um stífa hnúta og teygjum.

Tíminn er kenndur í heitum hóptímasal með infrarauðum hita í lofti ásamt hita og rakatækjum.
Hér eru nokkrir punktar um ávinning þess að stunda æfingar í infrarauðum sal og hvað infrarauður hiti getur gert fyrir okkur:

- Eykur útskilnað úrgangs / eiturefna í líkamanum
- Styrkir ónæmiskerfið
- Dregur úr vöðvaverkjum, spennu, bólguástandi, liðverkjum og óhreinni húð
- Eykur blóðrásina og umbrot (eykur þannig bruna líkamans)
- Dregur úr streitu og veitir orku
- Lækkar blóðþrýsting
- Hraðari endurheimt eftir meiðsli og æfingar með hárri ákefð.
- Infrarauður hiti styður við önnur meðferðarúrræði.

Undantekningarlaust skal hafa með sér stórt handklæði yfir dýnuna í öllum tímum í heitum sölum World Class einnig er mælt með því að þátttakendur hafi með sér dýnur (sínar eigin).

  1. Notendur geta bókað sig í tíma allt að 8 daga fram í tímann.
  2. Ef um miðatíma er að ræða þarf að gefa sig fram í afgreiðslu og fá miða minnst 5 mínútum fyrir tímann annars lendir viðkomandi í skammakróknum.
  3. Notendur skulu afbóka sig á vefnum minnst klukkutíma fyrir tímann.
  4. Notandi getur séð alla tíma sem hann er skráð(ur) í undir Mín tímatafla.
  5. Vinsamlegast truflið ekki eftir að kennsla hefst.
  6. Í sumum tilfellum er hurðum læst 5 mínútum eftir að tími hefst.
Þessi síða notar vafrakökur
Skoða nánar