Karfan þín

Warm Vinyasa er meira flæði en Hot Yoga og reynir meira á þolið og er því erfiðari útgáfa af Hot Yoga. Eins og með Hot Yoga tímana er æft í heitum sal og mikilvægt að hafa meðferðis stórt handklæði og vatnsbrúsa.

Tíminn er kenndur í heitum hóptímasal með infrarauðum hita í lofti ásamt hita og rakatækjum.
Hér eru nokkrir punktar um ávinning þess að stunda æfingar í infrarauðum sal og hvað infrarauður hiti getur gert fyrir okkur:

- Eykur útskilnað úrgangs / eiturefna í líkamanum
- Styrkir ónæmiskerfið
- Dregur úr vöðvaverkjum, spennu, bólguástandi, liðverkjum og óhreinni húð
- Eykur blóðrásina og umbrot (eykur þannig bruna líkamans)
- Dregur úr streitu og veitir orku
- Lækkar blóðþrýsting
- Hraðari endurheimt eftir meiðsli og æfingar með hárri ákefð.
- Infrarauður hiti styður við önnur meðferðarúrræði.

  1. Notendur geta bókað sig í tíma allt að 8 daga fram í tímann.
  2. Notendur skulu afbóka sig á vefnum minnst klukkutíma fyrir tímann.
  3. Notandi getur séð alla tíma sem hann er skráð(ur) í undir Mín tímatafla.
  4. Vinsamlegast truflið ekki eftir að kennsla hefst.
  5. Í sumum tilfellum er hurðum læst 5 mínútum eftir að tími hefst.
Þessi síða notar vafrakökur
Skoða nánar