
Zumba og Strong Nation tímunum okkar er skipt upp í 2x 30 mínútna æfingar.
STRONG Nation er HITT (High-Intensity-Tempo-Training) þjálfunarkerfi sem notar eigin líkamsþyngd og sameinar þolþjálfun, styrktarþjálfun og sprengikraftsþjálfun sem drifin er áfram af sérhannaðri tónlist sem passar við hverja æfingu.
Í Zumba eru skemmtileg og einföld spor í takt við suðræna tónlist og allir geta tekið þátt. Í sporunum er notast við eigin líkamsþyngd og mikil áhersla er lögð á „core“ svæðið, miðjuna, magann og bakið, og að beita líkamanum sem best.
Hver og ein getur stjórnað sínum hraða og hreyfingum og hvort hún hoppar eða ekki. Miðar út frá sjálfri sér. Mjög góð þolþjálfun með styrk í bland.
- Notendur geta bókað sig í tíma allt að 8 daga fram í tímann.
- Ef um miðatíma er að ræða þarf að gefa sig fram í afgreiðslu og fá miða minnst 5 mínútum fyrir tímann annars lendir viðkomandi í skammakróknum.
- Notendur skulu afbóka sig á vefnum minnst klukkutíma fyrir tímann.
- Notandi getur séð alla tíma sem hann er skráð(ur) í undir Mín tímatafla.
- Vinsamlegast truflið ekki eftir að kennsla hefst.
- Í sumum tilfellum er hurðum læst 5 mínútum eftir að tími hefst.