Lúxusstund hefst í Betri stofunni í Laugum. Svo er farið í mýkjandi fótabað og austurlenskt höfuðnudd. Frískandi og stinnandi augnmaski er settur á og að lokum er farið í klassíska fótsnyrtingu. Með þessu fylgir fersk og ljúffeng ávaxtaskál ásamt vínglasi eða ávaxtasafa til að gæða sér á meðan snyrtifræðingar Laugar Spa sjá um dekrið. Endað er á slökun í Betri stofunni.
Ath. Ekki sameiginlegt meðferðarherbergi í Aqua Spa Akureyri
Innifalið fyrir tvo:
- Fótabað
- Austurlenskt höfuðnudd
- Augnmaski
- Klassísk fótsnyrting
- Vínglas eða ávaxtasafi
- Ávaxtaskál
- Aðgangur að Betri stofunni