WorldFit grunnnámskeið
WorldFit upprifjunar- og grunnnámskeið
Þjálfarar WorldFit veita fjölbreytta, einstaklingsbundna og góða þjálfun. Þeir telja mikilvægt að iðkendur finni fyrir öryggi í tímum og hafi þekkingu til að framkvæma æfingar á réttan hátt. Af þeirri ástæðu er boðið upp á upprifjunar- og grunnnámskeið fyrir alla þá sem hafa áhuga á að æfa í Worldfit.
Mikil áhersla er lögð á grunnhreyfingar og rétta líkamsbeitingu. Farið er yfir út á hvað WorldFit gengur, tæknilegu atriðin í æfingum með eigin líkamsþyngd, undirstöðuatriðin í Ólympískum lyftingum og margt fleira. Námskeiðið er þrír tímar, 90 mínútur hver og því fylgir mánaðarkort í WorldFit sem virkjast í kjölfarið.
Grunnnámskeiðin eru kennd á öllum staðsetningum. Það hvar þú tekur grunninn er óháð því hvar þú hyggst mæta í WorldFit; meðlimir fá alltaf aðgang að öllum staðsetningum og tímum WF.
Nánari upplýsingar: worldfit@worldclass.is
Skráning á grunnnámskeið + 1 WorldFit mánuð
"Markmið okkar í WorldFit er að mynda samfélag…
- ...þar sem góður og hvetjandi andi ríkir.
- ...þar sem fólk nýtur þess að mæta á æfingar og hefur metnað fyrir því að hreyfa sig rétt og vel.
- ...þar sem við stefnum að stöðugum framförum.
- ...þar sem okkar helsti hvati fyrir æfingum og góðu mataræði er heilbrigður lífsstíll og allir þeir kostir sem honum fylgja"
Innifalið í WorldFit + heilsuræktarkorti World Class
Innifalið í WorldFit + heilsuræktarkorti World Class
Lokaðir WorldFit hóptímar allt að 7x í viku.
Öllum kortum fylgir aðgangur að 18 stöðvum World Class, ásamt aðgangi að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Lágafellslaug, Sundhöll Selfoss, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, sundlauginni á Hellu og sundlaug Akureyrar.
Einnig er mikið úrval af fjölbreyttum opnum hóptímum í tímatöflu.
Hægt er að bóka tíma í tækjakennslu. Bóka þarf tíma á www.worldclass.is/timatafla.
Athugið að aðgangur í heilsurækt miðast við 13 ára aldur.
KORTHAFAR Í HEILSURÆKT með mánaðarkort eða meira, fá tvo vinamiða í heilsuræktina í hverjum mánuði. Einnig er innifalið í heilsuræktarkortum 10% afsláttur af vörum og þjónustu hjá Laugar Spa snyrti- og nuddstofu (gjafabréf eru undanskilin, afsláttur gildir ekki í vefverslun). Korthafar í heilsurækt geta keypt stakan dag í Betri stofuna á kr. 4.830.-