![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fworldclass%2F19c3c78e-2d35-42c9-ae42-fbdbc7a933b7_einkathjalfun.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat%26rect%3D0%2C294%2C1920%2C692%26w%3D3328%26h%3D1200&w=2080&q=75)
Einkaþjálfaraskóli
Hefur þú áhuga á að starfa við einkaþjálfun?
Þá er Einkaþjálfaraskóli World Class spennandi kostur fyrir þig. Í Einkaþjálfaraskólanum starfa eingöngu háskólamenntaðir kennarar og allt námsefni er á íslensku. Aðeins 25 nemendur eru teknir inn á hverri önn. Námið er 10 vikna sem kennt er á laugardögum auk verknáms. Meðal annars er farið í næringarfræði, þjálfunarfræði, íþróttasálfræði, prógrammagerð, ástandsmat og líkamsbeitingu.
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fworldclass%2F3cd5ef00-efcc-4476-8ce6-3c9aa1521697_askorunin.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=2080&q=75)
Námið
Vorönn byrjar í apríl og haustönn í október. 20 ára aldurstakmark er í námið og stendur það yfir í 10 vikur. Kennsla fer fram laugardaga kl. 9:00 - 17:00 auk þess sem nemendur taka verknám sem felst í því að einkaþjálfa í 4 vikur.
Skráning er alltaf opin á oli@worldclass.is.
Verð kr. 299.000
Fjarnám kr. 250.000
Nánari upplýsingar gefur Ólafur Jóhannesson í síma 773-6163 / oli@worldclass.is
Helstu fög eru:
- Líffærafræði
- Næringarfræði
- Lífeðlisfræði
- Þjálfunarfræði
- Sálfræði
- Skyndihjálp
- Markaðssetning
- Sjúkdómafræði
- Íþróttasálfræði
- Prógrammagerð
- Fæðubótaefni