![Mynd af Ásta Björk Bolladóttir](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fworldclass%2F731bc298-a8fd-4ed0-9cfc-13c6110dc997_astabjork.jpeg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=2080&q=75)
Til baka í einkaþjálfara
Ásta Björk Bolladóttir
Menntun:
- Íþrótta- og næringarfræði í Iðnskólanum í Hafnarfirði
- Einkaþjálfaraskóli World Class 2013,
- Yogakennari (RYS 200) Hawaii,
- Maui Yoga Shala 2017
Námskeið:
- Movement Improvement
- Wim Hof method
- Framhalds- og handstöðunámskeið í Yoga
- Skyndihjálparnámskeið
- Fjölda námskeiða sem tengjast lífsstíl, hugleiðslu og andlegum málefnum.
Sérsvið:
Þjálfun mín byggist á því markmiði að einstaklingur öðlist aukið þol, styrk og liðleika þar sem ég legg mikið upp úr almennu hreyfiflæði og líkamlegri getu.
Ég legg mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl og jafnvægi til frambúðar, bæði líkamlegt og andlegt. Fjölbreyttar æfingar útfrá markmiðum og þörfum einstaklings.
Ég spilaði handbolta í mörg ár og bý yfir 12 ára reynslu í líkamsrækt, ásamt því að vera fyrrum íslandsmeistari í fitness. Ég æfi og keppi í Brazilian jiu jitsu og starfa einnig sem Yoga kennari.