Sumargjöf frá World Class

World Class gefur öllum ungmennum fæddum árið 2012 mánaðarkort í heilsurækt og sund í sumar.

Kortið veitir aðgang að 20 World Class stöðvum og 10 sundlaugum um land allt og er frábær leið til að prófa sig áfram, byggja upp góðar venjur og njóta sumarsins af krafti.

Að byrja að hugsa um heilsuna er stórt skref í átt að sterkari framtíð. Hjá World Class geta ungmenni æft í öruggu og hvetjandi umhverfi, fengið að kynnast fjölbreyttum æfingum og notið þess að vera hluti af öflugu samfélagi.

Komdu við á næstu World Class stöð og virkjaðu kortið þitt.

Aðeins eitt kort á kennitölu.
Þarf að virkja fyrir 1. ágúst 2026.