Saga World Class · síðan 1985

80 fermetrar í Skeifunni.
20 stöðvar í dag.

Haustið 1985 opnaði vélstjóri frá Flateyri lítinn tækjasal í Skeifunni 3c. Svona varð hann að stærstu heilsuræktarkeðju landsins.

fyrstu tímarnir, 16. sept.
1985
stöðvar um allt land
20
sundlaugar fylgja kortinu
10
fermetrar í Laugum
7.150
ársverk árið 2025
130

Sjoppa eða líkamsrækt

Björn Leifsson var vélstjóri hjá Eimskip og sólaði dekk í Gúmmívinnustofunni. Hann æfði vaxtarrækt og langaði í eigin rekstur.

  1. Ágúst 1985

    Samningur í Svíþjóð

    Björn flýgur til Stokkhólms og skrifar undir kaup á tækjum frá sænska World Class. Nafnið fylgdi með.

    Vikan18. okt. 1990

    „Þar skrifuðum við undir samning um kaup á tækjum frá World Class í Svíþjóð. Þar með var það ákveðið og ég fór út í líkamsræktarstöð frekar en sjoppu!“
    Björn Leifssontimarit.is
  2. 3. september 1985

    Skeifan 3c

    Fyrst opnar eróbikksalur á efri hæðinni og tækjasalurinn fylgir 1. október. Fyrsti salurinn var 80 fermetrar með fjaðrandi parketgólfi og tók 30 til 35 manns.

    Auglýsing um nýtt aerobic-stúdíó í Skeifunni 3C, verð 1.550 kr.
    Morgunblaðið, 3. sept. 1985, bls. 15timarit.is
  3. 13. október 1985

    Opnunarhátíð á Broadway

    Íslandsmeistarar í vaxtarrækt sýndu, haldin var tískusýning og eróbikksýning. Á matseðlinum var heiðarlamb með villikryddsósu á 700 krónur.

    Eigendur og starfsfólk í nýja tækjasalnum í Skeifunni 3c
    Morgunblaðið, 17. okt. 1985, bls. 36timarit.is
  4. Júlí 1987

    Íslenskur þolfimikennari fluttur út

    Sænska World Class pantaði Magnús Scheving til að kenna í stærstu stöðinni í Stokkhólmi í einn og hálfan mánuð. Takið eftir bolunum: World Class Gym Wear.

    Björn Leifsson, Magnús Scheving og Ulf Bengtson í World Class Gym Wear bolum
    DV, 16. júlí 1987, bls. 7timarit.is
  5. Haust 1988

    Skeifan 19, 900 fermetrar

    Aðsóknin kallaði á stærra hús: tveir þolfimisalir, nuddstofa, 12 manna nuddpottur, 300 læstir skápar og 34 sturtur. Í opnunarteitið 24. september 1988 bauð Björn öllum samkeppnisaðilunum. Dansarinn Hafdís Jónsdóttir var ein þeirra.

    Vísir4. apríl 2021

    „Dísa mætti og hefur verið hér síðan.“
    Björn LeifssonLesa viðtalið
    Heilsíðuauglýsing: Opnum stærstu og fullkomnustu heilsurækt landsins í Skeifunni 19
    Morgunblaðið, 11. sept. 1988, bls. B11timarit.is

Step, pilates og 24 tímar

World Class verður fyrst á Íslandi með hvern strauminn á fætur öðrum og fer í fyrsta sinn út fyrir Reykjavík.

  1. 1990

    Fyrst með Reebok step

    Stöðin stækkar í 1.200 fermetra. Keyptir eru tölvustýrðir þrekstigar og þrír stórir skjáir tengdir við gervihnött. Björn sagði sundlaugina vera „á fimm ára áætluninni“. Hún kom fjórtán árum síðar.

    Step-tími utandyra á tíunda áratugnum
    Step-tími utandyra á tíunda áratugnum. Einkasafn, birt í Vísi 2021
    Björn Leifsson í World Class bol í Skeifunni 19
    Vikan, 21. tbl. 1990, bls. 24timarit.is
  2. Mars 1992

    Dísa Íslandsmeistari í þolfimi

    Hafdís vann kvennaflokkinn á fyrsta Íslandsmótinu í þolfimi og keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Japan sama vor.

    Hafdís Jónsdóttir á Íslandsmótinu í þolfimi 1992
    DV, 14. mars 1992, bls. 44timarit.is
  3. September 1995

    Fellsmúli 24, gamli IKEA-lagerinn

    Þrjátíu iðnaðarmenn unnu nótt sem dag í tvo mánuði. Útkoman var 1.800 fermetra stöð með heitum pottum í garði til suðurs, opnuð á tíu ára afmælinu. Þar kenndi fyrsti pilateskennari landsins.

    Helgarpósturinn21. sept. 1995

    „Þetta er líka þriðja líkamsræktarstöðin sem ég set upp, þannig að ég ætti sjálfur að hafa lært af reynslunni.“
    Björn Leifssontimarit.is
    Frétt: Opnar langstærstu líkamsræktarstöð landsins
    Helgarpósturinn, 21. sept. 1995, bls. 20timarit.is
  4. 18. október 1997

    Akureyri, byggt út í sjó

    Fyrsta stöðin utan Reykjavíkur opnar í Slysavarnafélagshúsinu við Strandgötu, með fyrstu hlaupabrautirnar á Akureyri.

    Frétt: Ný líkamsræktarstöð á Akureyri, Hafdís, Ásta Hrönn og Björn
    Morgunblaðið, 21. okt. 1997, bls. 14timarit.is

Draumurinn um laugina

Sautján árum eftir fyrstu umsóknina opnar World Class í Laugardalnum.

  1. 21. október 2000

    Penthouse í Austurstræti

    Efsta hæðin í Austurstræti 17. Hinum megin við götuna rak Jónína Ben Planet Pulse, sama Jónína og kenndi fyrstu tímana í Skeifunni 1985.

  2. 6. október 2001

    Augnskanni í Spönginni

    Ingibjörg Sólrún borgarstjóri opnaði 1.330 fermetra stöð í Grafarvogi og prófaði nýjan augnskanna sem kom í stað aðgangskorta. Tuttugu og fimm árum síðar kemur lófaskanninn.

    Ingibjörg Sólrún borgarstjóri prófar augnskannann í Spönginni
    Morgunblaðið, 10. okt. 2001, bls. 16timarit.is
  3. 3. janúar 2004

    Laugar opna

    Rúmir 7.000 fermetrar við hliðina á Laugardalslaug, um 300 tæki og 500 fermetra baðstofa sem móðir Björns rak. 4.500 meðlimir fluttu með úr Fellsmúla.

    Tækjasalurinn í Laugum árið 2004
    Tækjasalurinn í Laugum 2004. Iceland Review, 1. tbl. 2004

    Vísir4. apríl 2021

    „Ég bjóst allt eins við að við færum að búa í fellihýsinu!“
    Birgitta Líf, um áhættuna þegar Laugar voru byggðarLesa viðtalið
    Frétt: Sjö þúsund fermetra heilsu- og sundmiðstöð opnuð í Laugardal
    Morgunblaðið, 5. jan. 2004, bls. 4timarit.is
  4. Desember 2007 til janúar 2008

    Fjórar stöðvar á tveimur mánuðum

    Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Turninn í Kópavogi.

    World Class Seltjarnarnesi
    Seltjarnarnes, opnuð í janúar 2008 · Mynd í dag

Nær heimilinu

„Ég hef alltaf séð fyrir mér að stöðin sé fjölskylduvæn og nálægt heimilum.“ Hafdís Jónsdóttir

  1. 2010 til 2014

    Ögurhvarf, Morgunblaðshúsið, Egilshöll, HR

    Stöð í gamla Morgunblaðshúsinu í Kringlunni, önnur í Ögurhvarfi, Spöngin flytur í Egilshöll og World Class opnar í Háskólanum í Reykjavík.

    World Class Egilshöll
    Egilshöll · Mynd í dag
  2. 2016

    Fjórar stöðvar á einu ári

    Selfoss 2. janúar, Árbær 1. júlí, Smáralind 24. október og Breiðholt við Breiðholtslaug viku síðar, 31. október.

    World Class Smáralind
    Smáralind, opnuð 24. október 2016 · Mynd í dag
  3. Janúar 2018

    Aftur á Akureyri

    World Class kaupir stöðvar Átaks við Strandgötu og Skólastíg. Ári síðar opnar stöð við Tjarnarvelli í Hafnarfirði.

    World Class Strandgötu á Akureyri
    Strandgata á Akureyri · Mynd í dag

Lokað, opnað, stækkað

Heimsfaraldur lokaði stöðvunum í nærri fimm mánuði. Enginn var látinn fara.

  1. 2020

    Fjórar bylgjur

    Á sama ári opnuðu stöðvar á Hellu og í Vatnsmýri.

    World Class Hellu
    Hella, opnuð 1. ágúst 2020 · Mynd í dag

    Vísir4. apríl 2021

    „En ég fann núna í fjórðu bylgju að mér leið ekki eins illa þegar tilkynningin um lokunina kom.“
    Björn LeifssonLesa viðtalið
  2. Apríl 2021

    Kringlan

    Ný stöð inni í Kringlunni. Gamla Morgunblaðshúsið verður alfarið WorldFit.

    World Class Kringlunni
    Kringlan · Mynd í dag
  3. 2023

    World Class Gym Wear snýr aftur

    Í auglýsingunni 1985 stóð „world class-fatnaður“ og árið 1987 voru Björn og Magnús Scheving myndaðir í World Class Gym Wear bolum. Þrjátíu og sex árum síðar kemur WCGW aftur.

  4. Október 2025

    40 ár og Akranes

    Stöðin á Jaðarsbökkum er opin allan sólarhringinn og sú nítjánda í keðjunni.

    World Class Akranesi við Jaðarsbakka
    Akranes, opnuð í október 2025 · Mynd í dag
  5. 2026

    WorldFit flytur í Kringluna

    Eftir sextán ár lokar stöðin í gamla Morgunblaðshúsinu og WorldFit fær nýtt heimili inni í Kringlunni.

  6. 2026

    Vestmannaeyjar

    Tuttugasta stöðin. Kortið gildir nú í 10 sundlaugum.

    World Class Vestmannaeyjum
    Vestmannaeyjar · Mynd í dag

Fermetrar

Úr 80 fermetrum í 7.150

Hver flutningur aðalstöðvarinnar, teiknaður í sama mælikvarða. Veldu línu til að sjá söguna á bak við hana.

Laugar, 2004Um 300 tæki, baðstofa og Laugardalslaug við hliðina.

Vissir þú?

Úr skúffunni

  • Saab

    Morgun-Jón

    „Alltaf þegar að ég mætti á morgnana var einhver rauður Saab fyrir utan.“ Fastagesturinn Morgun-Jón fékk á endanum að opna stöðina sjálfur.

    Vísir 2021
  • 1985

    Íþróttaálfurinn kenndi eróbikk

    Þegar fimm af sjö kennurum hættu réð Björn ungan mann sem hafði lært eróbikk í Noregi. Hann hét Magnús Scheving.

    DV, 16. júlí 1987
  • 0 kr.

    Bíllinn dugði ekki

    „Ég man að ég fór í bankann og bað um veð út á bílinn minn en þeir tóku það ekki í mál!“

    Vísir 2021
  • 9

    Íslandsmet eigandans

    Marta Unnarsdóttir, 22 ára meðeigandi 1985, átti níu Íslandsmet í kraftlyftingum og kenndi eróbikk á hverjum degi.

    Íþróttablaðið 1986
  • 2001

    Augu í stað korta

    Í Spönginni gengu meðlimir inn með augnskanna. Í dag er það lófinn.

    Morgunblaðið, 10. okt. 2001
  • IKEA

    Fellsmúli var lager

    Stöðin í Fellsmúla 24 var innréttuð í gamla lagerhúsnæði IKEA.

    Helgarpósturinn, 10. apr. 1995
  • Batman

    Danstímar Dísu

    Árið 1989 kenndi Dísa jassfunk, freestyle og Batman-dansa. „Jassfunk er mikið notað á tónlistarmyndböndum eins t.d. hjá Michael Jackson og Madonnu.“

    Pressan, 14. sept. 1989
  • 268

    Fyrsti fyrirtækjasamningurinn

    „Ég man að Eimskip keypti 268 kort fyrsta árið, 168 kort annað árið og 68 á því þriðja.“ Björn var sjálfur vélstjóri hjá Eimskip.

    Vísir 2021

Fólkið

Fjölskyldu­fyrirtæki síðan 1985

Björn Leifsson
Björn Leifsson, á níunda áratugnum
Þá
Viðskiptablaðið · Vísir

Stofnandi og framkvæmdastjóri

Björn Leifsson

Sjómannssonur frá Flateyri, vélstjóri úr Vélskólanum 1979. Æfði júdó, svo vaxtarrækt, og opnaði fyrstu stöðina 26 ára. Æfir enn sjálfur í stöðvunum.

„Ég var að æfa sjálfur í gær og það var alveg brjálað að gera.“

mbl.is, 26. des. 2025
Hafdís Jónsdóttir
Hafdís Jónsdóttir, á níunda áratugnum
Þá
Morgunblaðið · Vísir

Meðeigandi · framkvæmdastjóri Laugar Spa

Hafdís Jónsdóttir

Lærði dans, söng og leiklist í Flórída og stofnaði Dansstúdíó Dísu. Íslandsmeistari í þolfimi 1992. Byggði upp Laugar Spa.

„Ég hef alltaf séð fyrir mér að stöðin sé fjölskylduvæn og nálægt heimilum.“

Vísir, 4. apríl 2021
Birgitta Líf, Hafdís, Björn Goði og Björn við opnun Lauga 2004
Við opnun Lauga í janúar 2004. Mynd: Vísir

Birgitta Líf Björnsdóttir

Framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs

Ólst upp í barnagæslunni í World Class, stýrði markaðsmálum World Class og Lauga Spa í níu ár og tók við nýju sviði í mars 2026. Endurvakti World Class Gym Wear árið 2023.

„Ég man bara að ég var alltaf í barnagæslunni.“

Vísir, 4. apríl 2021

Skrifstofan

Fólkið sem þú hittir ekki í afgreiðslunni en heldur 20 stöðvum gangandi.

  • Aðalbjörg Guðjónsdóttir

    Bókhald og launafulltrúi

    Anna Bergmann

    Markaðsstjóri

  • Árný Helga Þórsdóttir

    Kortamál og frístundakort ÍTR

    Ásthildur Bára Jensdóttir

    Rekstrarþróunarstjóri

  • Birgitta Líf Björnsdóttir

    Framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs

    Björn Leifsson

    Framkvæmdastjóri

  • Hafdís Jónsdóttir

    Framkvæmdastjóri Laugar Spa

    Heiðrún Guðmundsdóttir

    Stafrænn markaðsfræðingur

  • Kjartan Oddason

    Forstöðumaður stafrænnar tækni og hönnunar

    Kristín Helga Waage Knútsdóttir

    Bókari

  • Linda Björk Hölludóttir

    Stöðvarstjóri Smáralind og Ögurhvarf

  • Sigurður Júlíus Leifsson

    Rekstrarstjóri húseigna

    Sylvía Arnfjörð

    Starfsmannastjóri

130 ársverk

Þjálfarar, kennarar, afgreiðsla, barnagæsla og baðstofa í 20 stöðvum. Viltu bætast í hópinn?

Atvinnuumsóknir

Gildin

Þekking.

Þjálfarar og kennarar tileinka sér nýjustu strauma. Fyrst með step 1990, fyrst með pilates 1995.

Þjónusta.

Opið frá klukkan sex síðan Morgun-Jón fékk lyklana. Akranes er opið allan sólarhringinn.

Samvinna.

Foreldrar Björns voru meðeigendur 1985, móðir hans rak baðstofuna og dóttirin stýrir nú þróun. Fjölskyldan hefur rekið stöðvarnar frá fyrsta degi.

Jafnlaunastefna

Laugar ehf. hefur innleitt jafnlaunakerfi skv. ÍST 85:2012 á grundvelli 7. gr. laga nr. 150/2020 um jafnlaunavottun sem nær til alls starfsfólks með jafnlaunastefnu þessa sem grunn. Tilgangur með jafnlaunakerfi er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynja innan Laugar ehf. með það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsfólks til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.

Jafnréttisáætlun þessi minnir stjórnendur og allt starfsfólk á mikilvægi þess að öll séu jöfn og að meta eigi þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og hæfni einstaklinga án tillits til kyns.

Jafnlaunastefna World Class er að fylgja kjarasamningum.

Mikilvægt er að fylgja meginreglunni um að öll njóti sömu tækifæra:

  • kjör eru ákveðin með sama hætti fyrir sömu, sambærileg eða jafn verðmæt störf
  • starfsfólk hefur sömu tækifæri til menntunar/endurmenntunar/símenntunar/námskeiða
  • öllum kynjum stendur til boða að sækja um störf hjá okkur
  • við finnum leiðir til að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf
  • við líðum ekki ofbeldi; hér undir fellur meðal annars kynbundið/kynferðislegt ofbeldi/áreitni

Jafnlaunakerfið er undir stöðugum umbótum og eftirliti. Komi upp frábrigði er brugðist við þeim.

Í jafnlaunakerfinu eru sett fram jafnlaunamarkmið og þau rýnd og endurskoðuð samkvæmt verklagsreglum þar að lútandi.

Jafnlaunakerfið er skjalfest á innra neti World Class.

Jafnlaunastefnan er aðgengileg öllu starfsfólki á innra neti World Class.

Jafnlaunastefnan er aðgengileg almenningi á heimasíðu World Class.

Ertu með ábendingu? Sendu okkur línu á worldclass@worldclass.is

Verklag við uppljóstrun starfsfólks um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi

Starfsfólki Laugar ehf. er heimilt að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækisins til aðila innan þess sem stuðlað getur að því að látið verði af eða brugðist við hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi eða til lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga, t.d. umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlitsins.

Miðlun getur verið til næsta yfirmanns starfsmanns eða trúnaðarmanna fyrirtækisins. Trúnaðarmenn og/eða yfirmenn fjalla um tiltekið mál og gera viðeigandi ráðstafanir. Móttakanda upplýsinganna eða gagnanna er skylt að stuðla að því að látið verði af hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi eða brugðist á annan hátt við henni. Móttakandi upplýsinganna skal greina starfsmanninum frá því hvort upplýsingarnar hafi orðið honum tilefni til athafna og þá hverra innan mánaðar frá tilkynningu.

Móttakandi upplýsinga eða gagnanna skal gæta leyndar um persónuupplýsingar sem honum berast um þann sem miðlar upplýsingum eða gögnum nema hinn síðarnefndi veiti afdráttarlaust samþykki sitt fyrir því að leynd sé aflétt. Starfsmanni sem miðlað hefur upplýsingum eða gögnum án þess að það hafi leitt til fullnægjandi viðbragða innan fyrirtækisins, er heimilt í góðri trú að miðla umræddum upplýsingum eða gögnum til utanaðkomandi aðila, þar á meðal fjölmiðla, svo fremi sem starfsmaðurinn hefur réttmæta ástæðu til að ætla að um háttsemi sé að ræða sem getur varðað fangelsisrefsingu.

Samstarfsaðilar

Life Fitness: World Class er umboðsaðili fyrir Life Fitness á Íslandi.  Nánari upplýsingar veitir Björn Leifsson í síma 553 0000 eða bjorn@worldclass.is

Hammer Strength: World Class er umboðsaðili fyrir Hammer Strength á Íslandi.  Nánari upplýsingar veitir Björn Leifsson í síma 553 0000 eða  bjorn@worldclass.is