Viltu vinna á sterkum og skemmtilegum vinnustað?
Hjá World Class starfar fólk með víðtæka þekkingu og fjölbreyttan bakgrunn. Við erum alltaf að leita að fólki í hinar ýmsu stöður.
Tekið er á móti starfsumsóknum á netfangið umsoknir@worldclass.is.
Vinsamlegast látið ferilskrá fylgja ásamt ítarupplýsingum.
Við erum alltaf að leita að góðu starfsfólki!
Starfsfólk World Class
Starfsfólk World Class er á öllum aldri með víðtæka þekkingu og fjölbreyttan bakgrunn. Starfsfólk leitast við að veita frábæra þjónustu hvar og hvenær sem er. Gætt er fyllsta öryggis í aðbúnaði og kennslu. Kennarar og þjálfarar leitast við að tileinka sér nýjustu strauma og stefnur í heilsueflingu og fjölbreyttur bakgrunnur þeirra gefur öllum tækifæri á að fá þjálfun við hæfi. Gildi World Class; þekking, þjónusta og samvinna endurspegla þann mannauð sem starfar í öllum 12 starfsstöðvunum.
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fworldclass%2F19c3c78e-2d35-42c9-ae42-fbdbc7a933b7_einkathjalfun.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=2080&q=75)
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fworldclass%2Fe1fa1e4a-a2f3-43d7-b4c0-8f96bd70a0f0_WCI_WorldFit_Kids_Teens_2022_57.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=2080&q=75)
Gildin okkar
Þjónusta: Við viljum vera þekkt fyrir framúrskarandi þjónustu og leitum stöðugt nýrra tækifæra til að bæta þjónustu.
Samstarf: Við vinnum saman og finnum lausnir. Samskipti okkar einkennast af jákvæðni, heiðarleika, trausti og virðingu. Við tökum ábyrgð á því sem við erum að gera og viðurkennum mistök okkar.
Þekking: Við vitum hvaða þekkingar er þörf í okkar starfi til að sinna því vel. Við leitum sífellt leiða til að auka þekkingu okkar og miðlum henni okkar á milli.